33. N1 móti KA lauk um helgina en um er að ræða stærsta mótið hingað til. Alls var keppt í 8 deildum, keppendur um 2.000, 204 lið frá 49 félögum og alls 888 leikir sem gera 26.640 mínútur af fótbolta. Mótið heppnaðist mjög vel og ríkti mikil gleði á mótinu og ekki skemmdi fyrir að veðrið var mjög gott þegar leið á mótið.
Strákarnir í KA 1 gerðu sér lítið fyrir og unnu sigur í Argentísku deildinni og er þetta í fyrsta skiptið síðan árið 1991 að KA vinnur sigur í efstu deild mótsins. Við óskum strákunum hjartanlega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.
KA-TV sýndi alla leikina á velli 8 (N1 völlurinn) sem gera alls 76 leiki í beinni og allir með lýsendum. Hægt er að panta eintak af sjónvarpsleikjum mótsins með því að hafa samband í netfanginu agust@ka.is.
Myndband mótsins í ár er unnið af GS Production og má sjá hér fyrir neðan:
Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara
Argentíska deildin: KA 1
Brasilíska deildin: 07 Rush WI
Chile deildin: Snæfellsnes 1
Danska deildin: Grótta 2
Enska deildin: Breiðablik 8
Franska deildin: Valur 6
Gríska deildin: Stjarnan 7
Hollenska deildin: KFR 3
Stuðboltar mótsins: Þróttur Reykjavík
Háttvísisverðlaun Sjóvá: Sindri/Neisti
Sveinsbikarinn: Vestri (háttvísi innan sem utan vallar)
Skotfastasti leikmaður: Andri Valur Finnbogason - KA 1 (84 km/klst)
Menn leiksins í úrslitaleik Argentísku deildarinnar:
Óskar Arnór Einarsson KA 1
Alexander - Valur 1
Menn leiksins í úrslitaleik Brasilísku deildarinnar:
Frosti Björn Björnsson Stjarnan 2
Emmeth Rush USA
Menn leiksins í úrslitaleik Chile deildarinnar:
ÍBV Morgan Goði Garner
Snæfellsnes Asmer Begic
Menn leiksins í úrslitaleik Dönsku deildarinnar:
Sveinbjörn Jóhannsson Stjarnan
Gunnar Róbertsson Grótta
Menn leiksins í úrslitaleik Ensku deildarinnar:
Baldur Breiðablik
Máni Stjarnan
Menn leiksins í úrslitaleik Frönsku deildarinnar:
Anton Máni Valur
Aron Matus KA
Menn leiksins í úrslitaleik Grísku deildarinnar:
Viktor Kári Jóhannsson Stjarnan
Sigurjón Gunnarsson Þróttur R
Menn leiksins í úrslitaleik Hollensku deildarinnar:
Ívar Ilur Birkisson KFR 3
Óðinn Andri Gunnarsson Stjarnan 8