Kvennalið Þórs/KA leikur lokaleik sinn í Pepsi deildinni á fimmtudaginn þegar FH kemur í heimsókn. Það er hreinlega allt undir í leiknum en með sigri tryggja stelpurnar sér sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn hefst klukkan 16:15 á Þórsvelli og viljum við sjá fulla stúku enda eiga stelpurnar það svo sannarlega skilið eftir frábært sumar.
Á sama tíma tekur Breiðablik á móti Grindavík en Breiðablik er tveimur stigum á eftir okkar liði í toppbaráttunni. Ef Breiðablik vinnur sinn leik og Þór/KA gerir jafntefli verða Blikar Íslandsmeistarar á betri markatölu. Það er því ljóst að okkar stelpur þurfa að einbeita sér að því að vinna FH og taka af allan vafa.
Þór/KA á frábæra styrktaraðila sem hafa séð til þess að það verður frítt á leikinn, fyllum stúkuna og fáum bikarinn heim, áfram Þór/KA!
FÉLAG | L | U | J | T | MÖRK | NET | STIG | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Þór/KA | 17 | 13 | 2 | 2 | 42 - 15 | 27 | 41 |
2 | Breiðablik | 17 | 13 | 0 | 4 | 43 - 10 | 33 | 39 |
3 | Valur | 17 | 11 | 1 | 5 | 45 - 18 | 27 | 34 |
4 | ÍBV | 17 | 9 | 5 | 3 | 31 - 19 | 12 | 32 |
5 | Stjarnan | 17 | 9 | 3 | 5 | 35 - 19 | 16 | 30 |
6 | FH | 17 | 7 | 2 | 8 | 17 - 22 | -5 | 23 |
7 | Grindavík | 17 | 5 | 3 | 9 | 16 - 40 | -24 | 18 |
8 | KR | 17 | 5 | 0 | 12 | 15 - 38 | -23 | 15 |
9 | Fylkir | 17 | 2 | 3 | 12 | 13 - 35 | -22 | 9 |
10 | Haukar | 17 | 1 | 1 | 15 | 13 - 54 | -41 | 4 |