Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri lék á dögunum á æfingamóti í Kína. KA átti tvo fulltrúa í hópnum en það voru þeir Aron Elí Gíslason og Daníel Hafsteinsson. Það var ljóst að þetta mót var gott tækifæri fyrir okkar stráka auk þess sem það er mikið ævintýri að koma til Kína.
Fyrsti leikur á mótinu var gegn Mexíkó, þrátt fyrir góða spilamennsku lengst af þá tapaðist leikurinn 0-2. Daníel kom inná sem varamaður í hálfleik og stóð aldeilis fyrir sínu og var valinn maður leiksins. Allir leikir á mótinu fóru fram í borginni Chongqing.
Næsti leikur var gegn heimamönnum í Kína og fékk Daníel nú sæti í byrjunarliðinu og gott betur því hann bar fyrirliðabandið. Heimamenn tóku forystuna í fyrri hálfleik en strákarnir jöfnuðu metin í þeim síðari. Daníel var skipt útaf í hálfleik.
Aron Elí sem hafði vermt varamannabekkinn fyrstu tvo leikina fékk hinsvegar tækifærið gegn Tælendingum í lokaleiknum. Daníel var aftur í byrjunarliðinu og lék fyrstu 82. mínútur leiksins en Aron Elí lék allan leikinn í marki Íslands. Íslenska liðið komst í 1-0 en Tælendingarnir jöfnuðu metin seint í leiknum og 1-1 jafntefli niðurstaðan.
Ísland fékk því tvö stig á mótinu og endaði í 3. sætinu, það verður að teljast ansi jákvætt að KA hafi átt tvo fulltrúa á mótinu auk þess hve stórt hlutverk þeir báðir léku.