Nágrannaslagir KA og Þórs í dag

Það eru alvöru nágrannaslagir í dag í fótboltanum en í 2. flokki karla tekur sameiginlegt lið KA/Dalvík/Reynir/Magni á móti Þór á KA-vellinum klukkan 18:00 en leikurinn er liður í 32-liða úrslitum Bikarkeppni 2. flokks.

Í 3. flokki kvenna mætast svo KA og Þór í Boganum klukkan 16:00 í hörkuslag í deildarkeppninni. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að mæta og styðja okkar lið enda mikill uppgangur í starfinu okkar og ljóst að bæði okkar lið ætla sér sigur í dag!