Archange Nkumu framlengir samning sinn við KA

Archie í baráttunni ásamt Hrannari
Archie í baráttunni ásamt Hrannari

Archange Nkumu eða Archie eins og hann er alltaf kallaður skrifaði nýverið undir nýjan tveggja ára samning við KA sem gildir út árið 2018

Archie kom til KA snemma árs árið 2015. Hann er ekki nema 23 ára gamall og er uppalinn hjá Chelsea á Englandi. Arhcie kom til KA í janúar 2015 og var á reynslu hjá félaginu í tvo mánuði. Hann heillaði þjálfara KA upp úr skónnum og fékk tveggja ára samning. 

Archie spilaði gríðarlega vel sumarið 2015 og var í algjöru lykilhlutverki hjá KA. Hann vakti athygli margra annarra félaga eftir frammistöðu sína, þá sérstaklega í bikarkeppninni þegar KA datt út í undanúrslitum gegn Val. Arhcie hélt góðri spilamennsku áfram með KA síðasta sumar en Archie hefur leikið 46 leiki fyrir KA í deild og bikar og skorað 3 mörk.