Aðalfundur knattspyrnudeildar KA

Aðalfundur knattspyrnudeildar KA verður haldinn í KA-Heimilinu mánudaginn 19. febrúar næstkomandi klukkan 18:00. Hefðbundin aðalfundarstörf verða á dagskrá ásamt kosningu stjórnar.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem hafa áhuga til að mæta og taka þátt í starfi félagsins.

Dagskrá aðalfundar 
1. Formaður setur fundinn 
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara 
3. Skýrsla stjórnar 
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar 
5. Kosning stjórnar
6. Önnur mál.