Tilnefningar til ţjálfara ársins 2024

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Sjö frábćrir ţjálfarar eru tilnefndir til ţjálfara hjá KA fyrir áriđ 2024. Ţetta verđur í fimmta skiptiđ sem verđlaun fyrir ţjálfara ársins verđa veitt innan félagsins. Ţjálfarar félagsins skipa lykilhlutverk í okkar starfi og erum viđ ákaflega heppin ađ eiga fjölmargar fyrirmyndarţjálfara innan okkar rađa.

Valiđ verđur kunngjört á afmćlisfögnuđi KA sunnudaginn 12. janúar í íţróttasal KA-Heimilisins og hefst veislan klukkan 17:00, allir velkomnir.

Egill Dađi er mjög fćr, skipulagđur og metnađarfullur knattspyrnuţjálfari. Viđ höfum veriđ heppin ađ hann hefur ţjálfađ lengi hjá félaginu og veriđ lykilţjálfari í uppgangi knattspyrnudeildarinnar. Egill Dađi er ţjálfari 2. flokks sem varđ Íslandsmeistari A-liđa og mun ţví á nćsta ári keppa í UEFA Youth League. Egill Dađi er vel ađ árangrinum kominn en hann hefur stýrt 2. flokk félagsins síđan haustiđ 2017 og á ţeim tíma hafa ófáir strákar fengiđ tćkifćri međ meistaraflokk félagsins.

Júdódeild KA hefur útnefnt Eirini Fytrou sem Ţjálfara ársins 2024 fyrir ómetanlegt framlag sitt til uppbyggingar deildarinnar. Ţrátt fyrir ađ hún hafi ađeins starfađ sem ţjálfari hjá deildinni frá síđasta hausti, hefur hún náđ einstökum árangri á skömmum tíma međ elju, dugnađi og skýrri framtíđarsýn.

Eirini hefur tekist ađ snúa ţróuninni í júdóinu viđ eftir tímabil lćgđar. Međ markvissri vinnu hefur hún tvöfaldađ iđkendafjöldann á ađeins nokkrum mánuđum, sem er ótrúlegur árangur. Ađ auki hefur hún gert deildina sýnilegri og lagt grunn ađ jákvćđum anda innan deildarinnar.

Međ Eirini í fararbroddi hefur Júdódeild KA ţróast frá ţví ađ vera einungis keppnismiđuđ yfir í fjölbreytt og skemmtilegt fjölskyldusport. Hún hefur náđ ađ sameina áherslur á keppnisárangur og félagslega ţátttöku, sem hefur eflt tengsl iđkenda, fjölskyldna ţeirra og deildarinnar sem heildar.

Eirini Fytrou er Ţjálfari ársins 2024 hjá Júdódeild KA vegna ástríđu sinnar fyrir íţróttinni og hćfileikans til ađ hvetja ađra til dáđa. Framlag hennar hefur sett sterkan svip á deildina og gefur góđ fyrirheit um áframhaldandi vöxt og velgengni í júdóinu.

Hallgrímur er klókur ţjálfari sem leggur leikinn vel upp, hann er einnig metnađarfullur og duglegur ţjálfari. Hallgrímur stýrđi KA ţegar liđiđ varđ Mjólkurbikarmeistari eftir sigur gegn Víking. Ţađ var eftirtektarvert hversu vel hann lagđi upp sigurinn gegn Val í undanúrslitum og úrslitaleikinn sjálfan. Fyrirfram átti KA ađ vera minna liđiđ í ţeim viđureignum en ţegar á hólminn var komiđ ţá unnum viđ sanngjarna og mikilvćga sigra fyrir félagiđ. Hallgrímur náđi ţar međ ađ feta í fótspor Guđjóns Ţórđarsonar ađ vinna stóran titil í knattspyrnu karla.

Heimir Örn Árnason hefur ţjálfađ hjá KA/Ţór undanfarin ár međ frábćrum árangri. Undir hans stjórn varđ 2012 árgangur kvenna íslands- og Bikarmeistarar. Heimir er ótrúlega metnađarfullur ţjálfari sem sinnir sínum iđkenndum ótrúlega vel.

Jón Heiđar ţjálfađi 6.flokk karla á síđasta ári međ frábćrum árangri ţar sem liđ 1 á eldra ári varđ Íslandsmeistari. Jón Heiđar hefur unniđ gríđarlega óeigingjarnt og faglegt starf fyrir KA síđustu ár. Jón Heiđar er einstaklega jákvćđur og skemmtilegur sem smitar út frá sér til félagsins.

Julia Bonet Carreras stýrir U16 ára liđi stúlkna í blaki og náđi hún frábćrum árangri međ hópnum sem skilađi ţeim bikarmeistaratitli og öđru sćti í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Hér er frábćr hópur sem á framtíđina fyrir sér og Julia er ţeim ómetanleg fyrirmynd jafnt innan vallar sem utan.

Miguel Mateo Castrillo er ţjálfari karla- og kvennaliđs KA í blaki. Međ stelpunum vann hann ţrjá titla af fjórum sem hćgt var ađ vinna tímabiliđ 2023-24; Meistari meistaranna, Deildar- og Íslandsmeistaratiltla. Hann vann jafnframt kosningu um besta ţjálfarann í úrvalsdeild kvenna hjá BLÍ. KA hefur misst mikilvćga leikmenn en ungir og efnilegir leikmenn hafa stigiđ upp og hefur Mateo enn og aftur sýnt styrk sinn sem ţjálfari ţví eins og stađan er í dag situr kvennaliđ KA í efsta sćti úrvalsdeildarinnar og karlaliđiđ í ţví ţriđja.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband