Flýtilyklar
Merki KA
Merki félagsins er rauður skjöldur á bláum skildi. Á rauða skildinum er gylltur eða hvítur knöttur og ofan hans standa bókstafirnir KA í hvítum lit. Um skildina er hvítur rammi.
Vakin er athygli á því að það er með öllu óheimilt að nota KA merkið nema með sérstöku leyfi aðalstjórnar KA.
Svarthvít útgáfa
Heimilt er að nota merkið í svörtum lit í þeim tilfellum er umhverfið er svart-hvítt.
Hönnunarstaðall KA
Hönnunarstaðall Knattspyrnufélags Akureyrar veitir leiðbeiningar um með hvaða hætti heimilt er að nota félagsmerki KA. Félagsmerki KA er skráð merki hjá Hugverkastofu. Öll notkun merkisins í öðrum tilgangi en er viðkemur starfsemi félagsins er óheimil án samþykkis aðalstjórnar félagsins. Hönnunarstaðallinn veitir starfsfólki, sjálfboðaliðum og öðrum er vinna með félagsmerki KA á vegum félagsins leiðbeiningar um notkun þess á: æfinga- og keppnisfatnaði, markaðsefni, vefsíðum, samfélagsmiðlum, söluvarningi o.fl.