Lydía framlengir um tvö ár við KA/Þór

Handbolti

Lydía Gunnþórsdóttir skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og verður hún því áfram í eldlínunni með okkar öfluga liði sem tryggði sér á dögunum sæti á ný í deild þeirra bestu.

Lydía sem verður 19 ára gömul seinna á árinu er uppalin hjá KA/Þór og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA/Þórs undanfarin ár en Lydía lék sinn fyrsta keppnisleik aðeins 15 ára gömul.

Auk þess að leika með KA/Þór hefur Lydía verið fastamaður í yngrilandsliðum Íslands en hún lék meðal annars á HM í Kína á síðasta ári með U18 ára landsliðinu.


Lydía hlaut Böggubikarinn á 96 ára afmæli KA

Lydía er gríðarlega efnilegur leikstjórnandi, með mikinn leikskilning og er auk þess frábær skotmaður. Þá býr hún yfir miklum leiðtogahæfileikum og drífur liðsfélaga sína með sér. Það eru því afar jákvæð tíðindi að Lydía verði áfram innan okkar raða og hlökkum við svo sannarlega til að fylgjast áfram með framgöngu hennar.

Lydía var mynduð fyrir framan skilti frá Greifanum en Greifinn hefur verið einn af aðalsamstarfsaðilum KA/Þórs undanfarin ár.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband