Júdóæfingar hefjast hjá yngriflokkum

Almennt | Júdó

Æfingar fyrir börn fædd 2005 og síðar hefjast samkvæmt æfingatöflu á morgun miðvikudag 18. nóv.

Júdóæfingar barna mega hefjast aftur, samkvæmt nýrri reglugerð sem tekur gildi á morgun 18. nóv. Verður börnum fæddum 2005 og síðar heimilt að mæta aftur til æfinga. Gunni og Berenika eru full tilhlökkunar og klár í að taka við krökkunum, líkleg tilbúin með ný tök og jafnvel köst líka.

Minnum á:

  1. Spritt er í anddyri KA heimilis og allir eiga að spritta sig við komu og brottför.
  2. Foreldrar þurfa að halda sig frá æfingasvæði;(
  3. Ef óvissa er um heilsu, vottur af flensueinkennum skal halda sig heima.
  4. Við erum öll að vanda okkur og því sótthreinsa þjálfarar sal og tæki eftir hverja æfingu.

F.h. stjórnar,
Sigmundur Magnússon
Formaður júdódeildar KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband