Flýtilyklar
Jonathan Rasheed gengur í rađir KA
Knattspyrnudeild KA fékk í dag góđan liđsstyrk er Jonathan Rasheed gekk í rađir félagsins. Jonathan sem er 33 ára gamall markvörđur sem kemur frá Noregi en er ţó fćddur í Svíţjóđ. Hann gengur í rađir KA frá sćnska liđinu Värnamo sem leikur í efstudeild ţar í landi.
Viđ erum afar spennt fyrir komu Jonathans hingađ norđur en hann mćtti á svćđiđ í dag og er ţví strax klár ađ koma sér inn í hópinn. Ţađ var ljóst eftir síđasta tímabil ađ ţađ yrđu breytingar á markmannsteymi Bikarmeistaraliđs KA en Kristijan Jajalo yfirgaf herbúđir KA eftir síđasta sumar.
Jonathan er fćddur í Gautaborg en er međ norskan ríkisborgararétt. Fađir hans er nígerískur og móđir hans er norsk. Á síđasta tímabili lék hann 14 leiki fyrir Värnamo í sćnsku úrvalsdeildinni er liđiđ tryggđi sér áframhaldandi veru í efstudeild en áriđ ţar á undan lék hann 22 leiki er Värnamo endađi í 5. sćti deildarinnar.
Alls hefur hann leikiđ 47 leiki í efstu deild í Svíţjóđ og 40 leiki í nćstefstu deild. Auk ţess á hann 29 leiki í norsku B-deildinni.
Eins og áđur segir erum viđ ákaflega spennt fyrir komu hans hingađ norđur og verđur spennandi ađ sjá hvernig hann kemur inn í hópinn. Hann skrifađi undir tveggja ára samning og er ţví samningsbundinn KA út sumariđ 2026.