Jóan Símun snýr aftur í KA!

Fótbolti
Jóan Símun snýr aftur í KA!
Velkominn aftur í KA!

KA barst heldur betur góđur liđsstyrkur fyrir komandi sumar er Jóan Símun Edmundsson skrifađi undir hjá félaginu en ţessi 33 ára gamli framherji/miđjumađur er einhver besti leikmađur í sögu Fćreyja.

Jóan gekk fyrst í rađir KA undir lok júlí mánađar sumariđ 2023 ţar sem hann sýndi gćđi sín. Eftirminnileg er frammistađa hans í evrópueinvígi KA gegn írska stórliđinu Dundalk FC sem KA vann samanlagt 5-3 en Jóan skorađi fyrra mark KA í 2-2 jafntefli liđanna á Írlandi.

Eins og áđur segir er Jóan einhver allra besti leikmađur í sögu Fćreyja en hann hefur leikiđ 94 landsleiki fyrir ţjóđ sína og gert í ţeim 8 mörk. 

Hallgrímur Jónasson ţjálfari KA lék međ Jóan međ liđi OB í Danmörku á sínum tíma en Jóan hóf feril sinn međ B68 Toftir í Fćreyjum og hefur átt gríđarlega flottan feril ţar sem hann hefur leikiđ međ stórum liđum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og Beveren áđur en hann kom fyrst til KA.

Undanfariđ hefur hann leikiđ međ liđi KF Shkupi í Makedóníu en kemur norđur á frjálsri sölu og verđur virkilega spennandi ađ sjá kappann aftur í gula og bláa búningnum. KA leikur á ný í evrópukeppni í sumar og ljóst ađ reynsla Jóans mun hjálpa liđinu í ţeirri baráttu auk leikjanna í Bestudeildinni og í titilvörn liđsins í Mjólkurbikarnum. Viđ bjóđum Jóan hjartanlega velkominn aftur norđur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband