Flýtilyklar
Guðjón Ernir til liðs við KA
Guðjón Ernir Hrafnkelsson gekk í raðir KA í dag er hann skrifaði undir samning við knattspyrnudeild sem gildir út sumarið 2027. Eru þetta afar jákvæðar fréttir en Guðjón er ákaflega spennandi leikmaður sem mun klárlega styrkja liðið fyrir baráttuna í sumar.
Guðjón Ernir er 23 ára gamall hægri bakvörður eða vængbakvörður sem hefur undanfarin fimm tímabil verið í lykilhlutverki í liði ÍBV. Með ÍBV lék hann í Bestu deildinni sumrin 2022 og 2023 en á nýliðnu sumri vann ÍBV sigur í Lengjudeildinni og leikur því aftur meðal þeirra bestu á komandi sumri.
Guðjón er þó uppalinn fyrir austan hjá Hetti og lék hann sína fyrstu meistaraflokksleiki sumarið 2017 með liði Hattar og síðar með hinu sameiginlega liði Höttur/Huginn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann nú þegar leikið 192 KSÍ leiki með meistaraflokk (þar af 163 í deild og bikar) og gert í þeim 7 mörk þó hann leiki sem bakvörður.
Það eru spennandi tímar framundan hjá Bikarmeisturum KA þar sem liðið leikur í Evrópukeppni í sumar auk þess sem það styttist í vígslu nýs keppnisvallar á KA-svæðinu. Við ætlum okkur áfram stóra hluti og er koma Guðjóns hingað norður svo sannarlega stór hluti af þeirri vegferð. Við bjóðum Guðjón velkominn norður og hlökkum til að fylgjast með honum í gula og bláa búningnum.