Einar Helgason sæmdur gullmerki KSÍ

Fótbolti
Einar Helgason sæmdur gullmerki KSÍ
Frá vinstri: Vignir Þormóðsson, stjórnarmaður í KSÍ, Einar Helgason og Þormóður Einarsson, sem lék lengi með Einari í bæði KA og ÍBA.

Einar Helgason, fyrrverandi leikmaður og þjálfari KA og ÍBA og einnig þjálfari margra annarra liða, var á framhaldsaðalfundi knattspyrnudeildar KA í gær sæmdur gullmerki KSÍ fyrir sín miklu og góðu störf í þágu knattspyrnunnar á Íslandi. Vignir Þormóðsson, stjórnarmaður í KSÍ, afhenti Einari gullmerkið og sagði eftirfarandi við það tækifæri:

"Ég er hér kominn fyrir hönd Knattspyrnusambands Íslands til að heiðra einn okkar dáðasta mann, Einar Helgason, en fyrst ætla ég að reyna að stikla á því helsta um hans feril.

 


Einar Helgason er fæddur 1932 og hóf sinn fótboltaferil sem markmaður
Austra á Eskifirði 13 ára gamall. Hann fór svo í Alþýðuskólann á Eiðum og spilaði með skólanum og Austra. 

Eftir landspróf stundaði hann nám í Hand- og myndíðakólanum í Reykjavík þar sem tími í tómstundir fór í fimleika og glímu. Síðan tók við frekara nám og að þessu sinni við Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni, þar sem fjölbreytt íþróttalíf var kennt og iðkað.

 


Árið 1953 fluttist Einar til Akureyrar og gekk til liðs við Knattspyrnufélag Akueyrar og varð strax markmaður liðsins, auk þess að þjálfa yngri flokka beggja Akureyrarfélaganna og kenna drengjum knatttækni á opnum völlum bæjarins.  Árið 1955 sameinuðust knattspynuliðin á Akureyri, Þór og KA, í meistaraflokki og sendu lið til keppni undir merkjum ÍBA.  Sjálft merkið hannaði Einar og varð jafnframt þjálfari liðsins í 2 ár ásamt því að verja markið sem hann og gerði áfram næstu
 árin þar á eftir, en þá undir annarra stjórn, eða allt fram til 1965 að hann tók við þjálfun liðsins á ný, en hætti jafnframt sem aðal markmaður, en var þó alltaf tiltækur í markið þegar þörf var á.  Árið 1969 gerði Einar lið ÍBA að bikarmeisturum eftir tvo úrslitaleiki við Akurnesinga og var sá seinni spilaður 7. desember, eða sama dag og Reykvíkingar söfnuðust saman á Austurvelli og kveiktu á Oslóarjólatrénu. Að sjálfsögðu var spilað á Melavellinum, sem var þá eitt forarsvað, enda gekk á með éljum meðan á leiknum stóð. En ÍBA-strákarnir með Einar í brúnni stóðu uppi sem sigurvegarar 3-2, Kári Árnason skoraði sigurmarkið í framlengingu.

 

Þegar árangur þjálfara í 1. deild á árunum 1966-1970 er skoðaður, kemur í ljós að Einar Helgason, þjálfari ÍBA, er þar í þriðja sæti yfir flest unnin stig, einungis Óli B. Jónsson, þjálfari Vals og KR og Ríkharður Jónsson, þjálfari Skagans og Keflavíkur eru með betra hlutfall vinningsleikja á þessum árum, aðrir koma þar töluvert langt á eftir.

 

Eftir bikarárið mikla söðlaði Einar um og réð sig sem spilandi þjálfara Völsungs, en að þessu sinni sem sóknarmaður og það með góðum árangri, að sagt er.  Eftir Húsavíkurdvölina var ferðinni heitið suður á Reykjanesið þar sem hann  tók við þjálfun Knattspyrnufélags Keflavíkur næstu tvö árin.  Fyrra árið, eða 1971, urðu Keflvíkingar Íslandsmeistarar.  Einar hefur sem sagt unnið, sem þjálfari, báða stóru bikarana sem í boði eru á Íslandi.

 

Mig langar til að vitna í ummæli sem höfð eru eftir Guðna Kjartanssyni, fyrirliða Keflavíkur á þessum tíma og síðar eins virtasta þjálfara okkar Íslendinga, þegar hann rifjar upp þessi ár með Sigmundi Ó. Steinarssyni, bókarhöfundi hins mikla verks sem 100 ára saga Íslandsmótsins er.

"Einar var frábær félagi - var ákveðinn og vissi hvað hann vildi. Hann lagði mikið upp úr því að við lékum þá knattspyrnu, sem hentaði okkur best hverju sinni. Keflavíkurliðið var ekki steypt í neitt ákveðið form, heldur var frjálsræðið látið ráða ríkjum. Þegar Einar kom, náði baráttan hámarki - allir vildu sanna sig og sýna hvað þeir gátu. Harkan var mikil - leikmenn voru fastir fyrir í návígum og rifust heiftarlega. Það var ekkert gefið eftir til að sýna Einari hvað menn gátu. Það fylgir sögunni, að Einar hafi horft á átökin dolfallinn og ekkert litist á mannskapinn sem hálfpartinn slóst inni á vellinum. En þegar "slagurinn" var búinn, voru allir sáttir. Menn slógu þá á léttari strengi og Einar fór hvergi," sagði Guðni Kjartansson.

 


Eftir að KA og Þór hættu að senda sameiginlegt lið til keppni undir merkjum ÍBA
tók Einar árið 1975 við þjálfun KA og þjálfaði iðið næstu tvö árin.  Í lok ferilsins þjálfaði hann einnig lið Völsungs, Leifturs og Magna , ávallt við góðan orðstír.

 

Það má ljóst vera að framansögðu að Einar Helgason hefur lagt mikið til knattspyrnunnar á Íslandi. Þess vegna er það mér mikill heiður að afhenda honum hér með gullmerki Knattspyrnusambands Íslands fyrir hans miklu og góðu störf. Jafnframt ber ég  honum og hans fjölskyldu kveðjur formanns og framkvæmdastjóra KSÍ."

 

 

 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband