Flýtilyklar
Sveinn Margeir framlengir út 2025
Sveinn Margeir Hauksson skrifađi í dag undir nýjan samning viđ knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út áriđ 2025. Ţetta eru stórkostlegar fréttir enda Sveinn Margeir algjör lykilmađur í liđi KA sem tryggđi sér ţátttöku í Evrópukeppni á komandi sumri.
Sveinn er 21 árs gamall en hefur ţrátt fyrir ungan aldur veriđ í stóru hlutverki í meistaraflokksliđi KA frá komu sinni í félagiđ áriđ 2019. Á nýliđnu tímabili steig hann enn stćrra skref og var í algjöru lykilhlutverki er KA endađi í 2. sćti Bestu deildarinnar og fór í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
Sveinn er frá Dalvík ţar sem hann steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá Dalvík/Reyni. Ţar sló hann í gegn og var međal annars valinn í liđ ársins í 3. deildinni sumariđ 2018 á fotbolti.net.
Hann hefur nú leikiđ 60 leiki í efstudeild og bikarkeppni fyrir KA og gert í ţeim 5 mörk en ţar af voru 26 leikir á nýliđnu sumri og ţar sem Sveinn gerđi alls fjögur mörk. Í kjölfariđ af frábćrri frammistöđu í sumar var Sveinn valinn í U21 árs landsliđ Íslands sem mćtti Tékklandi í umspili fyrir EM 2023.
Ţađ er ekki nokkur spurning ađ framtíđin er heldur betur björt hjá Sveini Margeiri og verđur afskaplega spennandi ađ fylgjast áfram međ framgöngu ţessa magnađa kappa í gula og bláa búningnum.