Flýtilyklar
Ívar Örn framlengir viđ KA út 2023
Ívar Örn Árnason framlengdi í dag samningi sínum viđ Knattspyrnudeild KA og er hann nú samningsbundinn félaginu út sumariđ 2023. Ţetta eru ákaflega jákvćđar fréttir enda er Ívar öflugur varnarmađur og ekki síst frábćr karakter sem gefst aldrei upp.
Ívar er 24 ára gamall og er uppalinn í KA og hefur leikiđ 52 meistaraflokksleiki fyrir félagiđ. Ţar af eru 16 leikir í sumar en hann hefur tekiđ ţátt í öllum leikjum KA í deild og bikar fyrir utan einn ţar sem hann tók út leikbann.
Ţá hefur hann einnig leikiđ 10 leiki fyrir Víking Ólafsvík sem og 10 leiki fyrir Magna Grenivík og gert sitthvort markiđ fyrir ţau félög. Undanfarin ár hefur Ívar stundađ háskólanám í Bandaríkjunum og leikiđ ófáa leiki í háskólaboltanum ytra.
Viđ óskum Ívari og Knattspyrnudeild KA til hamingju međ samninginn og hlökkum til ađ fylgjast áfram međ okkar manni í gulu treyjunni nćstu árin.