Flýtilyklar
Samantekt frá félagsfundi KA - 3. hluti
Metnaðarfullar framtíðarhugmyndir KA manna
Aðalstjórn KA stóð fyrir opnum fundi í KA-heimilinu síðastliðinn miðvikudag. Þar fluttu Ingvar Már Gíslason, formaður og Eiríkur S. Jóhannsson varaformaður framsögu um rekstrarumhverfi félagsins og framtíðar hugmyndir um uppbyggingu á félagssvæði KA.
KA menn létu sig ekki vanta, enda um mikilvæg málefni að ræða, og mættu rúmlega 300 manns á fundinn.
Eiríkur S. Jóhannsson varaformaður KA kynnti félagsmönnum framtíðarhugmyndir um uppbyggingu á KA svæðinu. Fram kom í máli hans að það sé stefna KA að öll starfsemi félagsins verði á einum stað, á núverandi svæði KA við Dalsbraut.
„Mikil tækifæri eru fyrir Akureyrarbæ ef öll starfsemi KA fer fram á KA-svæðinu því þá losnar til dæmis það svæði sem Akureyrarvöllur er á, auk þess sem íþróttahúsið við Laugagötu myndi losna en júdódeild KA er þar með aðstöðu í dag“, sagði Eiríkur meðal annars.
Hugmyndir KA varðandi framtíðaruppbyggingu hafa verið í vinnslu um nokkuð langt skeið og hefur félagið kynnt drög að útfærslum á tveimur afmælum félagsins auk þess að hafa átt fundi með forsvarsmönnum Akureyrarbæjar. Meðal þess sem KA vill byggja á svæðinu er fjölnotahús, keppnisvöll með gervigrasi, stúkubyggingu sem stenst leyfiskerfi KSÍ fyrir keppni í efstu deild og nýtt félagsheimili þar sem jafnframt verði æfingaaðstaða fyrir aðrar íþróttagreinar.
Með slíkri uppbyggingu hér á KA-svæðinu verða tækifærin mýmörg til þess að stytta vinnudag barna m.a. með samþættingu frístundar og fjölbreyttu íþróttastarfi. Börn í 1-4 bekk ná þannig að klára íþróttastarf sitt ásamt frístund fyrir kl 16.00 á daginn.
Möguleg framtíðaruppbygging KA-svæðisins (smelltu á myndina til að sjá hana stærri)
A: 2. hæða hús með nýju anddyri, móttöku, kaffihúsi, veislusal, búningsklefum, æfingasal og skrifstofu.
B - Stúka fyrir aðalkeppnisvöll
C - Fjölnotahús og áhaldageymsla
D - Áhorfendasvalir fyrir fjölnotahús og tenging við núverandi íþróttahús
E - Aðalkeppnisvöllur knattspyrnudeildar
F - Æfingavellir með gervigrasi
G - Æfingasvæði spaðaíþrótta og sparkvöllur
H - Æfingasvæði með grasi
I - Mögulegt svæði fyrir íþrótta og eða skólamannvirki
J - Núverandi íþróttahús KA
K - Gönguleiðir að og frá svæðinu
P - Bílastæði
Skynsamlegt að KA beri ábyrgð á uppbyggingunni
KA vill bera ábyrgð á framkvæmdinni með því að stofna rekstrar- og eignarhaldsfélag um uppbygginguna og sjá um fjármögnun á verkefninu. Fjármögnunin helst í hendur við leigu og rekstrarsamning við Akureyrarbæ til 15-20 ára
„Þetta uppbyggingarform er að okkar mati mjög heppilegt fyrir bæinn, KA getur nýtt sér kraft sjálfboðaliða sem sannarlega hafa sýnt félaginu stuðning í fyrri framkvæmdum félagsins. Félagið ætti að geta gert sér einhvern pening úr þessu um leið og við náum að deila hagkvæmninni til bæjarins“, sagði Eiríkur
Jafnframt koma fram í máli Eiríks að það sé mat félagsins og fleiri, að Akureyrarbær geti fjármagnað stóran hluta af verkefninu með sölu Akureyrarvallar, sem er í anda aðalskipulags bæjarins 2018 -2030.
„Við teljum að með þeim hugmyndum sem við höfum kynnt, náum við betri nýtingu á rekstri núverandi íþrótta- og skólamannvirkja sem og betri rekstri á öðrum íþróttagreinum sem gætu fundið sér heimili innan félagsins, allt í góðu samhengi við kynnta stefnu ÍBA.
Hefjist framkvæmdir á svæðinu á árinu 2019 má ætla að taka megi megnið af mannvirkjunum í fulla notkun á árunum 2020 og 2021“. Sagði Eiríkur að lokum
Að lokinni framsögu fengu þeir stjórnmálaflokkar sem bjóða fram til kosninga 26.maí að segja sína skoðun á uppbyggingarhugmyndum KA. Af orðum þeirra flestra að dæma er þess ekki langt að bíða að framkvæmdir geti hafist á KA svæði.