Flýtilyklar
Merki KA uppfært
03.05.2021
Almennt
Aðalstjórn KA samþykkti á dögunum breytingar á merki félagsins og hvetjum við alla aðila sem notast við merkið til að uppfæra það sem allra fyrst. Eins og fyrr er vakin athygli á því að það er með öllu óheimilt að nota KA merkið nema með sérstöku leyfi aðalstjórnar KA.
Merki félagsins er rauður skjöldur á bláum skildi. Á rauða skildinum er gylltur eða hvítur knöttur og ofan hans standa bókstafirnir KA í hvítum lit. Um skildina er hvítur rammi.
Svarthvít útgáfa
Heimilt er að nota merkið í svörtum lit í þeim tilfellum er umhverfið er svart-hvítt.