Flýtilyklar
Mateo 2. í kjöri íþróttakarls Akureyrar
Íþróttabandalag Akureyrar stóð í dag fyrir kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Akureyrar fyrir árið 2020. Tíu íþróttakarlar og tíu íþróttakonur komu til greina og fór á endanum svo að Miguel Mateo Castrillo varð annar hjá körlunum og Gígja Guðnadóttir í þriðja hjá konunum, bæði koma þau frá blakdeild KA.
Miguel Mateo Castrillo (mynd: Þórir Tryggvason)
Alls voru sex íþróttamenn úr röðum KA sem komu til greina í kvöld en ásamt Mateo var Brynjar Ingi Bjarnason knattspyrnumaður tilnefndur hjá körlunum. Hjá konunum voru tilnefndar auk Gígju þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir úr knattspyrnuliði Þór/KA og Ásdís Guðmundsdóttir úr handknattleiksliði KA/Þórs.
Gígja Guðnadóttir (mynd: Þórir Tryggvason)
Listhlaupakonan Aldís Kara Bergsdóttir og kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson hlutu sæmdarheitin að þessu sinni en þau urðu einnig hlutskörpust á síðasta ári. Við óskum þeim innilega til hamingju með verðlaunin.