FRESTAÐ TIL 16. APRÍL - Konukvöld KA

Almennt

Þá er komið að því aftur. Konukvöld KA sem stelpurnar í KA/Þór standa fyrir er framundan.

Gleðin verður laugardaginn 19. mars og opnar húsið 19:30 - Borðhald hefst um 20:00

Veislustjóri kvöldsins er Crossfittarinn og Snapchatt celebið Snorri Björns.
Honum til halds og traust verður Einar Höllu sem mundar gítarinn eins og honum einum er lagið í gegnum kvöldið og tekur fyrir okkur nokkra slagara.

Ekki má gleyma að ræðumaður kvöldsins verður á sínum stað, kynningar af ýmsu tagi og margt fleira skemmtilegt.

Matseðillinn er ekki af verri endanum, en við hefjum kvöldið á fordrykk sem gestir fá þegar þeir mæta.
Þar á eftir skellum við okkur í glóðasteiktar grísalundir með kryddkartöflum, sósu og meðlæti.
Og eftirrétturinn verður svo frönsk súkkulaðikaka og rjómi

Hægt er að nálgast miða með að heyra í Siguróla í 692-6646 eða tölvupósti á siguroli@ka.is og jafnvel bara upp í KA heimili á skrifstofutíma.

Miðaverð: 4.900 kr

Einnig eru allir meðlimir meistaraflokks kvenna að selja miða og má nálgast miða hjá þeim.

Hlökkum til að sjá ykkur 19. mars.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband