Flýtilyklar
KÁF fyrirlestrar í desember
Íþróttabandalag Akureyrar stendur fyrir fræðslufyrirlestrum um kynferðislega áreitni (KÁF) fyrir þjálfara, stjórnarmenn, starfsmenn og foreldrafulltrúa aðildarfélaga ÍBA í desember mánuði.
Fyrirlestrarnir fara fram í Teríunni í íþróttahöllinni og eru alls fjórir fyrirlestrar í boði. Alls eru sæti fyrir 40 manns á hverjum fyrirlestri og því mikilvægt að tilkynna skráningu/mætingu með tölvupósti til ellert@akureyri.is.
Við hvetjum alla sem tengjast okkar starfi til að sækja þessa mikilvægu fræðslu.
Tímasetningar fyrirlestranna eru eftirfarandi:
Miðvikudaginn 1. des. kl. 16:30 - 17:30
Miðvikudaginn 1. des kl. 20:00 - 21:00
Miðvikudaginn 8. des. kl. 16:30 - 17:30
Miðvikudaginn 8. des kl. 20:00 - 21:00