KA bikarmeistarar í blaki karla

Almennt

KA varð í dag bikarmeistari í blaki karla annað árið í röð þegar að liðið lagði Þrótt að velli, 3-1, í úrslitaleik sem fram fór í Laugardalshöll. KA hafði í gær lagt HK að velli, 3-2, í undanúrslitum.

Frábært blak var spilað í dag og KA var töluvert sterkari aðilinn. Þróttur vann aðeins eina hrinu, og það var eftir að KA var komið í 2-0. Frábær sigur hjá strákunum okkar og óskum við þeim innilega til hamingju með titilinn!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband