Flýtilyklar
Viðburður
Almennt - 19:00
Herrakvöld KA er á laugardaginn
Herrakvöld KA verður haldið með pompi og prakt nú á laugaradaginn í KA-heimilinu. Miðasala er í fullum gangi en dagskráin er gríðarlega flott.
Veislustjóri verður KA-maðurinn og Naglbíturinn Vilhelm Anton Jónsson og ræðumaður kvöldsins er enginn annar en forsetaframbjóðandinn og rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson.
Þá verður happadrættið á sínum stað, sem og uppboð á glæsilegum knattspyrnutreyjum og einhverju fleiru.
Glæsilegur hátíðarkvöldverður er innifalinn í verði miðans og verður maturinn einkar glæsilegur að venju.
Ekki gleyma að panta þér miða í tíma enn uppselt var á herrakvöldið í fyrra! Miðapantanir eru hjá Siguróla (siguroli@ka.is)