Flýtilyklar
Gunnar og Andri með næstu framsögu
12.02.2020
Almennt
Gunnar Líndal þjálfari KA/Þórs í handboltanum og Andri Hjörvar Albertsson þjálfari Þórs/KA í fótboltanum sjá um næstu föstudagsframsögu og munu ræða stöðuna í kvennaboltanum.
Að þessu sinni verður pizzahlaðborð og kostar einungis 2.000 krónur á manninn í þá veislu. Maturinn hefst klukkan 12:00 en áætlað er að kynning Gunnars og Andra hefjist klukkan 12:15 og taki um hálftíma.
Hlökkum til að sjá ykkur!