Flýtilyklar
Viðburður
Almennt - 20:00
Fræðslufyrirlestur um næringu íþróttafólks á morgun (Þriðjudag)
Á morgun, þriðjudag, mun Ásgeir Ólafsson vera með fræðslufyrirlestur um næringu íþróttafólks í KA-heimilinu kl. 20:00.
Ásgeir Ólafsson er þjálfari til 28 ára. Hann ætlar að fjalla um heilbrigði í matarvenjum og hvernig þú getur náð verulegum árangri með venjulegum mat framar fæðubótarvörum. Ásgeir skrifaði metsölubókina Létta leiðin og hefur komið víða fram sem fyrirlesari eftir útgáfu hennar.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00 og er frítt inn að venju og eru allir velkomnir.