Flýtilyklar
Björgvin Steindórsson er látinn
Björgvin Steindórsson, fyrrum félagi okkar lést að morgni 28 ágúst s.l. eftir löng og ströng veikindi 61 árs að aldri.
Björgvin var skrúðgarðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1982 sveinspróf 1985 og meistarabréf 1988. Diplóma í garðyrkjutækni frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri 2005. Hann var kennari við Oddeyrarskóla 1978 – 1980. Verkstjóri nýframkvæmda hjá garðyrkjudeild Akureyrarbæjar 1982 – 1987. Umsjónarmaður og verkstjóri hjá Lystigarði Akureyrar og forstöðumaður hans frá 1997 þar til hann lést.
Björgvin var mikill félagsmálamaður og vann í stjórnum ýmissa félaga hér á Akureyri um langt árabil. Hann ritaði margar greinar í bækur, blöð og tímarit um garðyrkju og blómarækt. Hann tók mikið af ljósmyndum og tók þátt í mörgum sýningum Áhugaljósmyndaklúbbs Akureyrar. Eftir Björgvin liggur mikið og fjölbreytt safn ljósmynda. Hann var m.a. í ritstjórn myndabókarinnar Akureyri – bærinn okkar sem út kom árið 2000. Hann var einnig meðhöfundur að bókinni Konur gerðu garðinn, saga Lystigarðs Akureyrar. Björgvin fékk heiðursviðurkenningu frá félagi garðyrkjumanna sem afhent var á sumardaginn fyrsta s.l.
Hann var mikill áhugamaður um íþróttir og keppti m.a. á sínum skólaárum með MA í körfuknattleik, knattspyrnu, blaki og skák og með íþróttafélagi stúdenta þar sem hann var Íslandsmeistari í blaki karla með því liði 1975 og 1976. Hann var þjálfari karlaliðs KA Í blaki 1978 – 1980 og öldungaliðs Óðins í blaki karla 1983 – 1984. Lék í blaki með KA og Óðni en með því félagi varð hann Íslandsmeistari í blaki öldunga í nokkur skipti.
Keppti í knattspyrnu með KA, Magna og Dagsbrún, í körfubolta með Þór Ak. og Íþróttafélagi stúdenta og í júdó með ÍR.
Björgvin fékk viðurkenningu frá stjórn KA 1983 fyrir frumkvöðlastarf í blaki karla.
Aðalstjórn KA sendir eiginkonu Björgvins, Önnu Rebekku Hermannsdóttur og fjölskyldu einlægar samúðarkveðjur.