Flýtilyklar
Árni Jóhannsson heldur áfram að styrkja félagið sitt.
18.12.2017
Almennt
Á dögunum komu systkini Árna Jóhannssonar, fyrrum formanns okkar, á skrifstofu knattspyrnudeildar með peningagjöf til minningar um bróður sinn. Þrjú ár eru nú liðin frá því að Árni féll frá, langt um aldur fram. Með gjöfinni vildu þau bæði minnast Árna en um leið styðja við áform félagsins um heildar uppbyggingu á félagssvæðinu.
Við þökkum þeim kærlega fyrir gjöfina um leið og við minnumst Árna Jóhannssonar með ævarandi þakklæti og hlýhug.