Flýtilyklar
Aðalfundir deilda
Aðalfundir allra deilda verða í vikunni 27-31 mars. Samkvæmt lögum félagsins skulu aðalfundir deilda og félagsins haldnir í mars ár hvert og hann auglýstur með minnst viku fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar:
1. Formaður setur fundinn
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Ákvörðun árgjalda
7. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda - skoðunarmanna.
8. Kosning nefnda.
9. Önnur mál.
Dagsetningar fyrir aðalfundi verður sem hér segir:
Aðalfundur Blakdeildar verður haldinn þriðjudaginn 28 mars kl 19.00
Aðalfundur Knattspyrnudeildar verður haldinn þriðjudaginn 28 mars kl 20.00
Aðalfundur Spaðadeildar verður haldinn miðvikudaginn 29 mars kl 19.00
Aðalfundur handknattleiksdeildar verður haldinn miðvikudaginn 29 mars kl 20.00
Aðalfundur félagsins verður svo haldinn fimmtudaginn 30 mars kl 18.00