Flýtilyklar
Alex Cambray íþróttakarl KA árið 2024
Alex Cambray Orrason úr lyftingadeild KA var í dag kjörinn íþróttakarl KA fyrir árið 2024. Annar í kjörinu var knattspyrnumaðurinn Hans Viktor Guðmundsson og þriðji var handknattleiksmaðurinn Daði Jónsson.
Alls voru fimm einstaklingar tilnefndir en auk þeirra þriggja voru Gísli Marteinn Baldvinsson úr blakdeild og Samir Ómar Jónsson frá júdódeild KA. Eins og venja er voru það fyrrum formenn KA sem sáu um úthlutunina en að þessu sinni mættu þau Hermann Sigtryggsson og Hrefna G. Torfadóttir ásamt núverandi formanni honum Eiríki S. Jóhannssyni.
Alex Cambray er vel að heiðrinum kominn en hann átti afbragðs ár í sinni íþrótt, kraftlyftingum. Hann setti nokkur Íslandsmet, náði fremsta árangri allra karlkyns keppanda á alþjóðamótum, ásamt því að hafa sigrað öll innlend mót ársins í búnaði óháð þyngdarflokki.
Hann sinnir stöðu formanns deildarinnar og er einnig yfirþjálfari kraftlyftinga innan hennar. Alex hefur verið drífandi í uppbyggingu lyftingadeildar KA og hefur hann fengið lof fyrir framgang sinn síðan deildin var stofnuð.
Í mars keppti Alex á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði, þar sem hann átti gott mót og landaði Íslandsmeistaratitli í sínum þyngdarflokki. Varð hann þar stigahæsti lyftari mótsins óháð þyngdarflokki.
Í maí keppti Alex á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Lúxemborg. Þar keppti hann í sterkum flokk og lenti þar í 5. sæti. Alex sló á því móti íslandsmetið í samanlögðu, þar sem hann lyfti 840 kg samtals. Á mótinu lyfti hann 340 kg í hnébeygju, 207,5kg í bekkpressu og 292.5kg í réttstöðulyftu sem er Íslandsmet í hans flokk.
Almennt keppir Alex í -93 kg flokki, en í ágúst keppti hann á bikarmótinu í kraftlyftingum og ákvað þar að keppa í flokknum fyrir ofan sig, þ.e. -105 kg. Þar sló hann íslandsmet í -105 kg flokki í hnébeygju, með 360,5 kg, sem er stigahæsta hnébeygja sem hefur verið tekin á Íslandi frá upphafi. Á mótinu sigraði hann flokkinn sem og var stigahæstur óháð þyngdarflokki sem tryggði honum bikarmeistaratitilinn.
Núna í nóvember keppti Alex á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði sem haldið var hér á Íslandi. Gekk honum einnig vel á því móti og lenti þar í 9.sæti með 837.5 kg í samanlagðri þyngd sem og átti sérstaklega góðan dag í hnébeygju þar sem hann endaði í 6. sæti. Alex lýkur árinu sem fjórtándi öflugasti lyftari ársins á heimslista alþjóða kraftlyftingasambandsins (IPF) og í 7. sæti á styrkleikalista Evrópskra lyftingasambandsins (EPF).
Hans Viktor sem varð annar í kjörinu átti heldur betur eftirminnilegt fyrsta ár í röðum KA en hann var valinn leikmaður tímabilsins á lokahófi knattspyrnudeildar. Hans Viktor hafði allan sinn feril leikið í Fjölni áður en hann skipti yfir í KA í lok árs 2023. Hann kom strax inn í KA af miklum krafti og sýndi og sannaði að hann yrði lykilmaður í liðinu.
Hann er stór og stæðilegur miðvörður sem er öflugur í návígjum, fljótur og góður að spila boltanum. Hugarfarið hans er til fyrirmyndar þar sem hann gefur alltaf allt í leikinn og heldur haus þegar illa gengur. Hann var einn af ljósum punktum liðsins þegar illa gekk í byrjun sumars en hápunktur tímabilsins var þegar hann átti stórkostlegan leik á Laugardalsvelli þegar liðið varð Bikarmeistari í fyrsta skiptið í sögu félagsins.
Daði Jónsson sem varð þriðji í kjörinu er einn mikilvægasti leikmaður handknattleiksliðs KA þessi dægrin. Hann er uppalinn hjá félaginu og kom aftur til liðs við KA í nóvember 2023, eftir smá ferðalag til Danmerkur. Daði getur spilað margar stöður á vellinum en hefur aðallega leikið í vinstra horni í sókn á þessu tímabili. Þá er hann gríðarlega öflugur varnarlega og sýnir mikið KA hjarta innan sem utan vallar. Þetta er einn harðasti KA maður liðsins og myndi gera allt fyrir félagið, hann svo sannarlega lifir fyrir KA.
Hann er einn af þremur fyrirliðum liðsins og er mjög mikilvægur í hópnum. Hans framlag verður seint metið á tölfræðiblaði enn í fyrra var hann stór hluti af liðinu sem komst í 8-liða úrslit Íslandsmótsins. Um þessar mundir er KA í 8.-9. Sæti og í 8-liða úrslitum í bikarkeppninni.