Flýtilyklar
Orðsending vegna júdóæfinga næstu daga
Mikilvægasta vörnin gegn COVID-19 í tengslum við æfingar er að farið sé eftir tilmælum heilbrigðisyfirvalda eins og nokkur kostur er. Heimilt er að stunda keppnisíþróttir og við stefnum því á að halda úti júdóæfingum eins og kostur er. Undanþága frá 1 metra reglu fyrir iðkendur og þjálfara gildir aðeins á æfingasvæðinu, ekki utan þess.
-
Mikilvægt er að iðkendur mæti aðeins rétt fyrir júdóæfingu. Aðeins iðkendur og þjálfarar þeirra hafa leyfi til að vera viðstaddir æfingar.
-
Iðkendur skulu ekki nota búningsklefa í KA heimili á meðan 20 manna bann er í gildi. Þeir skulu fara beint í júdósal og svo beint út eftir æfingu.
-
Ekki er heimilt að nota félagsaðstöðu fyrir eða eftir æfingu. Aðstaðan verður eingöngu til þess að geyma fötin á meðan við erum á æfingu.
-
Ekki er leyfilegt að deila drykkjum á æfingu. Hver og einn sér um að koma með drykki með sér.
-
Æfingatæki (Lyftingatæki og annar búnaður) skal sótthreinsaður fyrir og eftir æfingar.
-
Júdósalurinn verður sótthreinsaður á hverjum degi eftir æfingar svo og allir snertifletir sem snýr að salnum.