Jakob Snær Árnason og Knattspyrnudeild KA hafa framlengt samning sinn og er Jakob nú samningsbundinn KA út sumarið 2026. Þetta eru mjög góðar fréttir enda hefur Jakob komið sterkur inn í liðið hjá okkur síðustu ár og nú ljóst að hann verður áfram hjá félaginu næstu ár.
Jakob hefur tekið þátt í 6 leikjum í sumar eftir að hafa byrjað tímabilið meiddur og búinn að skora í þeim leikjum 2 mörk auk þess að skora sigurmarkið í bikarleiknum á móti Grindavík. Jakob tók þátt í 22 leikjum árið 2022 og skoraði 5 mörk. Gaman verður að fylgjast með Jakobi áfram í gulu treyjunni næstu árin.
Um leið og við fögnum því að Jakob sé búinn að framlengja við KA þá minnum við stuðningsmenn á Evrópuleikina sem eru framundan og vonumst til að sjá sem flesta á Framvellinum 13 júlí nk.