Handknattleiksdeild KA/Þórs í samvinnu við EINNI MEÐ ÖLLU verður með strandhandboltamót í Kjarnaskógi um verslunarmannahelgina. Mótið hefur slegið í gegn undanfarin ár og síðast komust færri að en vildu. Því er um að gera að skrá sig sem allra fyrst!
Mótið verður spilað á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi og verður leikið í blönduðum flokki, það er að segja strákar og stelpur munu spila saman. Fjórir eru inná í hverju liði, þar af einn í marki.
Strandhandbolti hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi undanfarin ár og lofum við miklu stuði enda ræður léttleikinn ráðum í sandinum. Flott mark gildir tvöfalt og því um að gera að sýna sínar bestu hliðar, við lofum svo að sjálfsögðu mikilli sól!
Fullorðinsmótið fer fram laugardaginn 3. ágúst og hefst klukkan 12:00 (2008 módel og eldri). Lengd mótsins fer eftir fjölda liða á mótinu. Þátttökugjaldið er 25.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið í gjaldinu er léttar veitingar og nóg af ísköldum drykkjum. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir sigurliðið og einnig fyrir bestu tilþrifin og bestu búningana.
Krakkamót er svo á sunnudeginum 4. ágúst í samvinnu með einni með öllu og skógardeginum Sunnudaginn 4. ágúst fer fram krakkamót (fædd 2009-2015) og hefst mótið klukkan 11:00. Lengd mótsins fer eftir fjölda liða. Að minnsta kosti þurfa fjórir leikmenn að vera í hverju liði og leikur markmaður með í sókninni.
Þátttökugjaldið er 15.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið í gjaldinu er pizzuveisla. Lokað verður fyrir skráningu laugardaginn 18.júlí. Skráning fer fram hjá agust@ka.is. Mikilvægt er að taka fram nafn á liði við skráningu!
Ekki missa af frábærri skemmtun um Verslunarmannahelgina á Akureyri, það er nóg um að vera bæði fyrir krakka og fullorðna. Sjoppa verður á svæðinu.