Nágrannaslagur í dag (myndband)

Svabbi er klár í nágrannaslaginn!
Svabbi er klár í nágrannaslaginn!

Það er heldur betur skammt stórra högga á milli í handboltanum þessa dagana en KA sækir nágranna sína í Þór heim klukkan 16:00 í Höllinni í dag. Þetta er þriðji leikur liðsins á sex dögum auk þess sem aðeins ellefu dagar eru síðan KA og Þór mættust í Coca-Cola bikarnum.

KA liðið er á miklu skriði þessa dagana en strákarnir áttu einhverja eftirminnilegustu endurkomu síðari tíma í handboltanum er þeir knúðu fram 27-27 jafntefli gegn Val í KA-Heimilinu á fimmtudaginn. Valsmenn leiddu 20-26 er fimm og hálf mínúta var eftir og enn 23-27 er rétt rúmar tvær mínútur lifðu leiks. Karakterinn í KA liðinu er gríðarlegur og hafa strákarnir nú tryggt sér stig á lokasekúndum leikja sinna gegn FH, ÍBV og Val.


Þessi skemmtilega samantekt frá bikarsigri KA á Þór á dögunum ætti að koma öllum í gírinn fyrir leik dagsins!

Þá tryggðu strákarnir sér áframhaldandi veru í bikarkeppninni á kostnað nágranna sinna í Þór með öflugum endasprett í Höllinni á dögunum. Þórsarar sem höfðu leitt leikinn í fyrri hálfleik höfðu náð að minnka muninn í eitt mark er rétt rúm mínúta var eftir og höfðu tækifæri á að jafna en tókst ekki og í kjölfarið vann KA 23-26 sigur.

Það vill oft verða þegar lið mætast tvívegis á skömmum tíma að þau skipti sigrunum á milli sín en það er klárt að Jonni og strákarnir hafa engan áhuga á að missa af mikilvægum tveim stigum í dag. Baráttan í Olísdeildinni er gríðarlega hörð en með sigri færi KA liðið upp í 12 stig og færi þá upp fyrir lið eins og Val og Stjörnuna.

Þórsarar eru hinsvegar með 4 stig í næst neðsta sæti og þurfa nauðsynlega að koma sér nær liðunum þar fyrir ofan en þeir hafa leikið einum leik meira en KA. Það má því reikna með hörkuleik eins og nær ávallt er liðin mætast og ljóst að þú vilt ekki missa af leiknum!

Engir áhorfendur eru leyfðir rétt eins og undanfarið en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport en útsending þeirra hefst klukkan 15:50. Við sendum strákunum góða strauma og áfram KA!