KA/Þór vann enn einn heimaleikinn í 1.deild kvenna í handbolta á sunnudaginn þegar liðið fékk FH í heimsókn í KA-heimilið. KA/Þór lagði grunninn að sigrinum með góðum fyrri hálfleik og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 16-9.
FH-konur voru ekki á því að gefast upp og áttu ágætis tilþrif í síðari hálfleik en munurinn var einfaldlega orðinn of mikill og sigldi KA/Þór sigrinum nokkuð örugglega í höfn.
Lokatölur 25-21 og fimmti heimasigur Akureyrarliðsins í vetur staðreynd. Eftir leikinn er KA/Þór í fjórða sæti deildarinnar.
Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 13, Aldís Ásta Heimisdóttir 3, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 3, Steinunn Guðjónsdóttir 3, Katrín Vilhjálmsdóttir 1, Erla Hleiður Tryggvadóttir 1, Kara Rún Árnadóttir 1.
Mörk FH: Mörk FH: Fanney Þóra Þórsdóttir 8, Steinunn Snorradóttir 7, Birna Íris Helgadóttir 2, Diljá Sigurðardóttir 2, Laufey Lára Höskuldsdóttir 2.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Akureyri-TV og hægt að horfa á hann með því að smella hér.
Þá tók Þórir Tryggvason fjölmargar ljósmyndir á leiknum sem er hægt að skoða hér.