Myndaveisla frá jólaæfingunni

Það var gríðarlega mikið fjör á jólaæfingu 7. og 8. flokks í handboltanum sem fram fór í gær í KA-Heimilinu. Krakkarnir tóku vel á því á síðustu æfingunni fyrir jólafrí auk þess sem jólasveinar litu við og tóku virkan þátt í æfingunni. Að lokum sungu allir jólalög og krakkarnir fengu glaðning að honum loknum.

Mætingin var mjög góð hjá krökkunum sem og foreldrum sem skemmtu sér mjög vel að fylgjast með krökkunum leika listir sínar í skotbolta, tarzan leik og allskonar skotæfingum. Leikmenn KA og KA/Þórs voru á svæðinu og leiðbeindu þessum ungu og efnilegu handboltakrökkum.

Myndaveislu frá æfingunni má nálgast með því að smella á myndina hér fyrir neðan. Á sama tíma viljum við þakka fyrir samveruna á árinu og hlökkum til að sjá krakkana eldhressa aftur á handboltavellinum eftir áramót.


Smelltu á myndina til að sjá myndaveislu frá æfingunni