4. leikur Akureyrar og FH. Heimir reiknar með fullu húsi í kvöld
25.04.2012
Það er allt undir
í Höllinni í kvöld, Akureyri þarf sigur til að knýja fram oddaleik á föstudaginn á meðan FH gerir út um einvígið
með sigri. Vikudagur ræddi við Heimi Örn Árnason, fyrirliða Akureyrar og Einar Andra Einarsson þjálfara FH um
leikinn:
Heimir Örn segir Akureyringa hafa farið vel yfir sín mál eftir tapleikinn í Kaplakrika í síðasta leik og mæta hvergi bangnir til leiks
í kvöld.
„Ég og aðrir lykilmenn liðsins vorum einfaldlega á rassgatinu í síðasta leik og það kemur ekki fyrir aftur. Við ætlum okkur að
vinna þennan leik í kvöld, líkt og við gerðum í síðasta heimaleik og stela þessu svo í oddaleiknum á föstudaginn. Ég
reikna með fullu húsi í kvöld og brjálaðri stemmingu í Höllinni og við erum bara spenntir,“ sagði Heimir.
„Við erum fullir tilhlökkunar,“ segir Einar Andri. „Við förum í alla leiki til þess að vinna og ætlum að klára þetta
einvígi í kvöld. Við förum fullir sjálfstrausts í leikinn eftir sigurinn í síðasta leik en við gerum okkur fyllilega grein fyrir
því að það verður við ramman reip að draga. Það er alltaf erfitt að spila í Höllinni fyrir norðan en við erum einbeittir
á verkefnið í kvöld. Við erum í dauðafæri í að komast í úrslit og ætlum okkur að nýta það,“
sagði Einar.
Það má búast við hasar í kvöld, Heimir á spjalli við FH-bekkinn í leik 2