Kristín Aðalheiður framlengir um tvö ár

Handbolti

Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og leikur því með áfram með liðinu. Þetta eru frábærar fréttir en Kristín er uppalin hjá KA/Þór og afar mikilvægur hlekkur í okkar öfluga liði.

Kristín sem leikur í vinstra horni verður 25 ára í sumar og hefur hún verið lykilþáttur í okkar flotta liði undanfarin ár. Hún hefur nú leikið alls 115 meistaraflokksleiki í deild, bikar og evrópu fyrir félagið og hefur hún unnið allt sem hægt er að vinna rétt eins og faðir hennar gerði með karlaliði KA á árum áður en faðir hennar er Jóhann Gunnar Jóhannsson en hann lék alls 417 keppnisleiki fyrir KA.

"Það eru frábærar fréttir að við séum búin að framlengja við Kristínu og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á vellinum fyrir KA/Þór. Hún er algjör lykilleikmaður fyrir komandi ár, hefur þrátt fyrir ungan aldur mikla reynslu og er auk þess góð fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn í liðinu" segir Stefán Guðnason formaður KA/Þórs.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is