KA vann leikinn mikilvæga (myndaveislur)

Gríðarlega mikilvæg stig í hús! (mynd: EBF)
Gríðarlega mikilvæg stig í hús! (mynd: EBF)

KA tók á móti Fjölni í gær í síðustu umferð Olís deildar karla fyrir jólafrí. Þarna var um sannkallaðan fjögurra stiga leik að ræða en með sigri gat KA haldið sér í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og á sama tíma komið sér sex stigum frá fallsæti.

Strákarnir hófu leikinn af miklum krafti og komust strax í 5-0 áður en gestirnir náðu áttum. Sá munur hélst á liðunum út fyrri hálfleikinn og leiddi KA 20-15 er flautað var til hálfleiks. Mikill hraði einkenndi leikinn og var svolítið um sveiflur, ljóst að leikurinn væri hvergi nærri búinn þrátt fyrir góða stöðu í hléinu.

Tímalína fyrri hálfleiks


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum

Það tók líka Fjölnismenn ekki langan tíma að koma sér inn í leikinn í síðari hálfleik og þeir jöfnuðu metin í 23-23 eftir um sjö mínútur. Í kjölfarið var jafnt á öllum tölum og komin svakaleg spenna í leikinn. En strákarnir sýndu flottan karakter í að halda alltaf áfram og leyfðu Fjölnisliðinu aldrei að leiða.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Á endanum vannst gríðarlega mikilvægur 35-32 sigur og var sigrinum eðlilega vel fagnað en á sama tíma voru gestirnir eðlilega ansi svekktir með að fá ekkert útúr leiknum þrátt fyrir hetjulega baráttu.

Tímalína seinni hálfleiks

Sigþór Gunnar Jónsson átti stjörnuleik en hann var markahæstur með 8 mörk og þá gerði Daníel Örn Griffin 7 mörk og var einnig ansi drjúgur. Dagur Gautason og Allan Norðberg gerðu báðir 5 mörk, Daníel Matthíasson 3, Jóhann Einarsson 2, Daði Jónsson 2, Jón Heiðar Sigurðsson 1, Patrekur Stefánsson 1 og Einar Birgir Stefánsson 1 mark. Í markinu varði Jovan Kukobat 12 skot og Svavar Ingi Sigmundsson varði 1 skot.

Strákarnir eru því í flottri stöðu með 11 stig í 8.-9. sæti þegar jólafríið í deildinni fer í gang. Aðeins 8 umferðir eru eftir fram að úrslitakeppni og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með hvort strákunum takist ætlunarverk sitt að komast þangað. Stemningin í KA-Heimilinu í gær var til fyrirmyndar og viljum við þakka kærlega fyrir þann frábæra stuðning sem strákarnir hafa fengið í vetur.