Stelpurnar í KA/Þór tóku í gær á móti Fylki í Grill 66 deild kvenna. Bæði lið höfðu spilað níu leiki og KA/Þór með 17 stig en Fylkir með 6 stig. Leikurinn fór fremur rólega af stað, KA/Þór komust í 3-1 en Fylkisstelpur jöfnuðu í 3-3 og komust í kjölfarið yfir, 3-4 og 4-5 en eftir það tók KA/Þór leikinn yfir og gaf fá færi á sér. Mestur varð munurinn 7 mörk í fyrri hálfleik en heimastúlkur leiddu 16-9 í hálfleik.
Eins og tölurnar bera með sér þá voru yfirburðir heimakvenna á öllum sviðum, Fylkiskonur fengu argagrúa vítakasta eða sjö í fyrri hálfleiknum en Sunna Guðrún Pétursdóttir varði tvö þeirra en eftir sem áður kom meirihluti marka Fylkis eða fimm mörk af vítalínunni. Hér að neðan er hægt að sjá helstu atriði varðandi gang leiksins, bláa línan sýnir hvernig markamunurinn þróaðist.
Í seinni hálfleik jókst forskot heimakvenna jafnt og þétt og undir lok leiksins varð hann hvað mestur eða 14 mörk. Fylkiskonur voru iðnar við að fiska vítaköst og náðu sér í fimm til viðbótar í seinni hálfleiknum sem skiluðu þó bara þrem mörkum, Sunna varði sem sé eitt til viðbótar. Markaskorun liðanna varð sú sama og í fyrri hálfleiknum þannig að þegar upp var staðið var öruggur sigur KA/Þór staðreynd, 32-18.
Sunna Guðrún átti stórleik í markinu og varði alls 21 skot og var valin maður leiksins. Eins og ljóst má vera voru yfirburðir KA/Þór algerir fyrir utan fyrstu tólf mínúturnar. Engu að síður voru stelpurnar reknar átta sinnum útaf, raunar fékk Jónatan þjálfari eina brottvísunina. Þar að auki fékk Aldís Ásta Heimisdóttir beint rautt spjald á 47. mínútu og kom þar með ekki meira við sögu.
Mörk KA/Þór: Aldís Ásta Heimisdóttir 7, Steinunn Guðjónsdóttir 7, Ásdís Guðmundsdóttir 4, Ásdís Sigurðardóttir 3, Katrín Vilhjálmsdóttir 3, Martha Hermannsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Auður Brynja Sölvadóttir 2 og Ólöf Marín Hlynsdóttir 1 mark.
Áður er getið markvörslu Sunnu Guðrúnar en Margrét Einarsdóttir stóð vaktina í lokin og varði eitt skot.
Mörk Fylkis: Hrafnhildur Irma Jónsdóttir 9, Elín Rósa Magnúsdóttir 3, Tinna Karen Victorsdóttir 2, Berglind Björnsdóttir 1, Edda Marín Ólafsdóttir 1, Eyrún Ósk Hjartardóttir 1 og María Ósk Jónsdóttir 1 mark. Í markinu varði Ástríður Glódís G Gísladóttir alls 14 skot.
Hér er einnig tölfræðiyfirlit sem við tókum saman í í útsendingu KA-TV á meðan útsendingu stóð:
Eftir leikinn eru KA/Þór og HK efst og jöfn með 19 stig en KA/Þór á þó leik til góða.
Næsti leikur KA/Þór er laugardaginn 3. febrúar gegn Fram U og verður hann í KA heimilinu.
Eins og kemur fram hér að ofan var leikurinn gegn Fylki í beinni útsendingu á KA-TV og er hægt að horfa á leikinn í spilaranum hér að neðan.