KA/Þór - ÍBV kl. 19:30 í kvöld!

Stelpurnar ætla sér 2 stig! (mynd: Þórir Tryggva)
Stelpurnar ætla sér 2 stig! (mynd: Þórir Tryggva)

Það er alvöru handboltaleikur í KA-Heimilinu í kvöld þegar KA/Þór tekur á móti ÍBV í 3. umferð Olís deildar kvenna. Athugið að leikurinn fer fram klukkan 19:30 en ekki 18:00 eins og upphaflega stóð til.

Bæði lið eru með 2 stig eftir fyrstu tvo leikina en KA/Þór gerði sér lítið fyrir og vann 23-24 útisigur á Haukum í síðustu umferð. ÍBV lagði hinsvegar Stjörnuna að velli 27-25 í fyrstu umferð en lá svo gegn nýliðum HK 21-22 sem kom ansi mörgum á óvart.

Stelpurnar hafa verið magnaðar á heimavelli undanfarin ár og hafa talað mikið um hvað þær ætla að verja heimavöllinn vel í vetur. Til að það standist þurfum við öll að sameinast um að fjölmenna í stúkuna og styðja þær til sigurs, áfram KA/Þór!

Fyrir ykkur sem ekki komist í KA-Heimilið þá verður leikurinn í beinni á KA-TV: