KA/Þór burstaði Aftureldingu fyrir framan fullt hús - myndir

Stelpurnar fagna glæsilegum sigri. Mynd: Hjalti Þór Hreinsson
Stelpurnar fagna glæsilegum sigri. Mynd: Hjalti Þór Hreinsson
Frábær mæting var í KA-heimilið í dag þegar að KA/Þór burstaði Aftureldingu í Olís-deild kvenna. Ríflega 350 manns sáu stúlkurnar vinna 31-23. Sigurinn var aldrei í hættu en Aftureldingu var spáð 11. sæti deildarinnar en KA/Þór því tólfta.

KA/Þór hóf leikinn af miklum krafti og náði strax góðu forskot. Þær gáfu þó aðeins eftir í lok fyrri hálfleiks en leiddu þó með tveimur mörkum í hálfleik, 14-12. Martha Hermannsdóttir fór mikinn í sóknarleik Norðanstúlkna og spilaði stöllur sínar uppi, hvað eftir annað.

Í síðari hálfleik var aldrei spurning um hvort liðið fær með sigur að hólmi, en KA/Þór náði strax 9 marka forskoti og eftir það var ekki aftur snúið. Fjölmargir áhorfendur leiksins sáu stúlkurnar leika við hvurn sinn fingur og ber sérstaklega að nefna frammistöðu Sunnu Pétursdóttur í marki KA/Þór en hún varði fjölmörg skot, þrátt fyrir ungan aldur.

Markahæst í liði KA/Þór var Martha Hermannsdóttir með 10 mörk en Hekla Daðadóttir gerði 10 fyrir Aftureldingu.

Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 10, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3, Lilja Sif Þórisdóttir 3, Simone Antonia Pedersen 3, Erla Hleiður Tryggvadóttir 2 og Klara Fanney Stefánsdóttir 1.

Þá viljum við minna fólk á að enn er hægt að kaupa ársmiða á leiki stelpnanna. Um að gera er að setja sig í samband við einhverja stúlkuna í liðinu, þjálfara eða stjórn til þess að kaupa miða. Þeir kosta litlar 5000kr og veitir það aðgang í hálfleikskaffi á öllum 11 heimaleikjunum.

Hér er hægt að skoða fjölmargar myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum.