Það er ansi krefjandi verkefni framundan hjá KA í Olís deild karla í dag þegar strákarnir sækja topplið Hauka heim að Ásvöllum. Leikurinn er liður í 13. umferð deildarinnar en fyrir leikinn eru Haukar enn taplausir á toppnum en KA er á sama tíma í 8. sætinu.
Leikurinn hefst klukkan 17:30 og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Hafnarfjörðinn og styðja strákana til sigurs. Er liðin mættust í KA-Heimilinu fyrr í vetur var um hörkuleik að ræða þar sem KA leiddi er um 10 mínútur lifðu leiks en Haukarnir reyndust sterkari undir lokin og unnu 23-26 sigur.
Fyrir þá sem ekki komast á Ásvelli bendum við á að leikurinn verður í beinni útsendingu á Haukar-TV og er hægt að fara inn á rás þeirra með því að smella hér.