KA með sigur á Mílunni

KA lék sinn annan leik í Grill66 deildinni á þessu tímabili á föstudaginn. Að þessu sinni sótti liðið Míluna heim og var leikið á Selfossi.

Þrjár breytingar voru á liðinu frá leiknum gegn ÍBV U um síðustu helgi. Daði Jónsson, Áki Egilsnes og Heimir Örn Árnason voru ekki með að þessu sinni en í þeirra stað komu Kristján Helgi Garðarsson og Jón Heiðar Sigurðsson (yngri) inn í hópinn auk Ólafs Jóhanns Magnússonar.

Mílan byrjaði leikinn af krafti, skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og leiddu eftir 15 mínútna leik, 7-5. En þá vaknaði KA liðið heldur betur til lífsins, jafnaði í 7-7 og komst yfir með glæsilegu sirkusmarki Andra Snæs eftir sendingu frá Bjarka Símonarsyni. Áfram hélt KA liðið og jók forskotið í 7-10 áður en Mílumenn komust á blað á ný.

Mestur varð munurinn sex mörk, 8-14 en Mílumenn löguðu stöðuna í 9-14 með skoti á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks. Andri Snær Stefánsson fór á kostum í fyrri hálfleiknum en hann skoraði 7 af fyrstu tíu mörkum liðsins.

KA liðið hafði örugg tök á leiknum og hélst þessi munur lengst af seinni hálfleiks en þegar tíu mínútur voru til leiksloka náði Mílan smááhlaupi og tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk, 19-22 og síðar í 20-23. Sú staða hélst síðan óbreytt í um fjóra og hálfa mínútu eða þar til Ólafur Jóhann Magnússon hjó á hnútinn með sínu sjötta marki úr hægra horninu.

Sissi sækir að Mílu-markinu
Sigþór Árni Heimisson fer fram hjá Mílumanninum Rúnari Hjálmarssyni. Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Sigþór Árni Heimisson vann vítakast í þann mund sem tíminn rann út og steig Andri Snær á punktinn og skoraði úr vítinu, sitt níunda mark í leiknum. Lokatölur héldu menn að hefðu verið 22-25 en samkvæmt leikskýrslu var fjögurra marka sigur í lokin, 22-26 þannig að eitt mark KA virðist hafa farið fram hjá starfsmönnum á markatöflunni. Liðið því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Mörk KA: Andri Snær Stefánsson 9 (5 úr vítum), Ólafur Jóhann Magnússon 6, Sigþór Árni Heimisson 4, Dagur Gautason 3, Elfar Halldórsson 3 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark.
Bjarki Símonarson var með 6 varin skot og Svavar Ingi Sigmundsson 5 skot.

Mörk Mílunnar: Rúnar Hjálmarsson 7, Árni Felix Gíslason 3, Páll Dagur Bergsson 3, Ársæll Einar Ársælsson 2, Gunnar Páll Júlíusson 2, Jóhannes Snær Eiríksson 2, Sigurður Már Guðmundsson 2 og Sverrir Andrésson 1 mark.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Selfoss TV og er hægt að horfa á útsendinguna hér.

Næsti leikur KA í Grill 66 deild karla er föstudaginn 6. október þegar Haukar U koma í heimsókn.