KA í deild þeirra bestu eftir stórsigur

Stemingin var mögnuð! (mynd: Þ.Tr)
Stemingin var mögnuð! (mynd: Þ.Tr)

KA tryggði sér sæti í Olísdeild karla að ári eftir stórkostlegan 37-25 sigur á HK í þriðja leik liðanna í KA-Heimilinu í gærkvöldi. KA vann alla þrjá leiki liðanna og þar með einvígið 3-0 og tryggði þar með veru sína meðal þeirra bestu á ansi hreint sannfærandi hátt.

Stemningin í KA-Heimilinu var algjörlega til fyrirmyndar og mættu tæplega 1.000 manns, flestir gulklæddir og var mikið líf á pöllunum. Þetta setti tóninn því KA hóf leikinn af gríðarlegum krafti og skoraði fyrstu 5 mörk leiksins. Gestirnir úr Kópavoginum reyndu hvað þeir gátu til að brúa bilið en það tókst ekki og KA leiddi allan fyrri hálfleikinn með 4-6 mörkum.

Hálfleikstölur voru 18-12 og það efaðist ekki nokkur einasti maður í húsinu hvernig leikar myndu enda, slík var baráttan og gleðin sem skein úr andlitum okkar manna.

Tímalína fyrri hálfleiks

Síðari hálfleikur hófst mjög svipað og sá fyrri því KA keyrði hreinlega yfir HK liðið og náði fljótlega 10 marka forystu. Að klára leikinn var svo bara formsatriði og þegar lokaflautið gall var munurinn 12 mörk, 37-25, og sigurgleðin mögnuð í húsinu.

Tímalína seinni hálfleiks

Andri Snær Stefánsson var markahæstur með 9 mörk (þar af 3 úr vítum), Áki Egilsnes gerði 7, Dagur Gautason 6, Ólafur Jóhann Magnússon 3, Jovan Kukobat 2, Sigþór Árni Heimisson 2, Einar Birgir Stefánsson 2, Einar Logi Friðjónsson 1, Daði Jónsson 1, Jón Heiðar Sigurðsson 1, Elfar Halldórsson 1, Heimir Örn Árnason 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark.

Tölfræði leiksins


Glatt á hjalla enda takmarkinu náð! Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir frá leiknum

Leikurinn var í beinni útsendingu á KA-TV og er hægt að horfa á leikinn í spilaranum hér að neðan.

KA lék aftur undir eigin merki í handboltanum í vetur eftir að hafa leikið undir merkjum Akureyrar Handboltafélags frá árinu 2006. Það þurfti að huga að ýmsu fyrir veturinn enda voru menn í raun að byrja alveg upp á nýtt. Það að liðið hafi farið upp á fyrsta tímabili og einnig hve mikil stemning og gleði hefur verið ríkjandi í vetur er algjörlega frábært.

Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn í vetur og nú horfum við öll björt fram á veginn og höldum áfram að byggja upp handboltann enda á handboltinn í KA heima meðal þeirra bestu.