KA lék sinn fyrsta leik í Grill 66 deild karla á þessu ári í gær. Mótherjinn var Mílan, sem kemur frá Selfossi og næsta nágrenni. Þetta var þriðja viðureign liðanna á tímabilinu en KA hafði unnið hinar tvær fyrri viðureignirnar sem fóru fram á Selfossi.
Mílumenn mættu norður með fámennan hóp, tólf manns á skýrslu og enginn í stöðu þjálfara eða liðsstjóra.
Heimamenn virtust hálf ryðgaðir framan af fyrri hálfleik og eftir tuttugu mínútna leik var staðan 8-5 fyrir KA. Markvörður Mílumanna, Sverrir Andrésson átti stórleik og varði flest sem á mark þeirra kom, þar af fjölmörg dauðafæri.
Á þessum tímapunkti tók Stefán Árnason leikhlé og vildi fá meiri kraft og einbeitingu í leik sinna manna. Óhætt er að segja að þeir hafi svarað kalli þjálfarans því það sem eftir lifði hálfleiksins juku þeir forskotið í sex mörk og staðan 13-7 í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var síðan algjör einstefna þar sem KA liðið réð ferðinni. Á fyrstu tuttugu mínútum hálfleiksins skoraði Mílan einungis eitt mark gegn 11 mörkum heimamanna. Eins og gefur að skilja þá var einungis formsatriði að ljúka leiknum og helsta spurningin hversu stór sigur heimamanna yrði.
Svarið við því varð nítján mörk, 31-12 og með stigunum tveim heldur KA áfram toppsæti deildarinnar.
Leikurinn var sýndur á KA-TV en á þeim bæ höfum við stöðugt verið að þróa grafíkina sem birtist á skjánum, jafnt tímalínuna sem við notum einnig í þessari umfjöllun svo og samanburð á nokkrum tölfræði þáttum liðanna sem einnig birtist hér. Bláa línan á tímalínunum sýnir hvernig forystan og markamunur liðanna þróast í leiknum.
Tölfræðisamanburður liðanna
Áki Egilsnes var valinn maður KA liðsins í leiknum en hann var markahæstur, Andri Snær var öryggið uppmálað á vítalínunni og Einar Logi Friðjónsson sýndi góða spretti í markaskoruninni.
Mörk KA: Áki Egilsnes 8, Andri Snær Stefánsson 6 (5 úr vítum), Einar Logi Friðjónsson 5, Elfar Halldórsson 3, Sigþór Árni Heimisson 3, Daði Jónsson 2, Sigþór Gunnar Jónsson 2, Heimir Örn Árnason 1 og Jóhann Einarsson 1 mark.
Jovan Kukobat stóð lengst af í markinu og átti prýðisleik, vítabaninn Svavar Ingi reyndi við fyrra víti Mílumanna en hafði ekki erindi að þessu sinni, Svavar Ingi kom svo í markið undir lok leiksins.
Mörk Mílunnar: Árni Geir Hilmarsson 3, Birgir Örn Harðarson 2, Páll Dagur Bergsson 2, Eyþór Jónsson 1, Ketill Heiðar Hauksson 1, Sverrir Andrésson 1, Trausti Elvar Magnússon 1 og Örn Þrastarson 1 mark.
Langbesti maður Mílunnar var markvörðurinn Sverrir Andrésson með 16 skot varin og sömuleiðis átti Hermann Guðmundsson góða innkomu í lokin með 5 varin skot.
Næsti leikur KA liðsins í Grill 66 deildinni er næskomandi laugardag, 3. febrúar þegar liðið sækir Hauka U heim.
Eins og áður segir var leikurinn sýndur í beinni á KA-TV og hægt að horfa á upptökuna í spilaranum hér að neðan.