Jens Bragi framlengir um tvö ár

Handbolti
Jens Bragi framlengir um tvö ár
Jens og Haddur formaður handsala samninginn

Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2024-2025. Jens sem er enn aðeins 16 ára gamall lék 11 leiki með meistaraflokksliði KA á nýliðnu tímabili þar sem hann gerði 17 mörk, þar af 6 í heimaleik gegn Selfyssingum.

Það eru afar jákvæðar fréttir að Jens sé búinn að gera nýjan samning en hann er einn allra efnilegasti línumaður landsins og verið burðarstóll í ógnarsterku liði KA í árgang 2006 en strákarnir töpuðu ekki leik í öllum fjórða flokki þar sem þeir hömpuðu öllum þeim titlum sem í boði voru á Íslandi áður en þeir urðu Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna.

Frammistaða Jens á nýliðinni leiktíð sýnir skýrt að hann á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og verður afar gaman að fylgjast með honum áfram stíga skref fram á við í meistaraflokksliði KA í efstu deild á næstu leiktíð.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is