Handboltaveisla í KA heimilinu á laugardaginn

Á laugardaginn verður magnaður þríhöfði í KA heimilinu!
Bæði KA/Þór og KA eru búin að vera á miklu flugi í Grill 66 deildunum og eru ósigruð í vetur!

Klukkan 13:45 á KA/Þór leik við Aftureldingu en Afturelding situr í 6. sæti í Grill 66 deild kvenna með 3 stig eftir 4 leiki. Stelpurnar í KA/Þór eru með fullt hús eða 8 stig eftir fjóra leiki. Síðast kepptu þær gegn ÍR í Breiðholtinu og unnu þar nauman eins marks sigur. Sunna Guðrún varði m.a. víti á lokasekúndunum.

Strax þar á eftir, eða klukkan15:45 tekur meistaraflokkur KA á móti Ungmennaliði Stjörnunnar í KA heimilinu. Stjarnan U er í 8. sæti í Grill 66 deild karla með 4 stig eftir 5 leiki en KA á toppnum með 10 stig. Síðasti leikur KA liðsins var í Laugardalshöllinni þar sem þeir unnu góðan 5 marka sigur á Þrótti, 20-25.

Miðinn kostar 1.000 kr og gildir á báða leikina, þannig er tilvalið að gera sér ferð í KA heimilið, styðja bæði liðin til sigurs og gera húsið að alvöru gryfju!

Á milli leikja verður hægt að versla ilmandi, sjóðheitar pizzur og gos og fleira góðgæti gegn vægu verði.

Reyndar heldur handboltaveislan síðan áfram því búið er að setja á bikarleik hjá 3. flokki karla strax á eftir. Þar mæta KA strákarnir liði Aftureldingar og hefst sá leikur klukkan 17:45.

KA-TV verður á staðnum
Við reiknum með því að sýna báða Grilll 66 deildarleikina á KA-TV og hefst útsendingin frá KA/Þór leiknum væntanlega um klukkan 13:40. Smelltu hér til að horfa á leik KA/Þór og Aftureldingar.

Útsendingin frá karlaleiknum hefst um klukkan 15:40.  Smelltu hér til að horfa á leik KA og Stjörnunnar U.