Handboltaskóli Bjarna Fritz verður haldinn á Akureyri 10. - 21. júní og er ætlaður ungmennum 10 ára og eldri. Aðstoðarmaður Bjarna
á námskeiðinu er enginn annar en Oddur Gretarsson og munu þeir án efa mynda flott teymi. Skipt verður í hópa eftir aldri og því munu
strákar og stelpur æfa saman.
Handboltaskólinn verður frá mánudeginum 10. júní til föstudagsins 21. júní.
Æfingarnar verða í tvo tíma í senn þar sem afrekshugsun og fagmennska verður í hávegum höfð. Æfingarnar byrja á stuttum
fyrirlestrum meðal annars um 1000 klst regluna, árangur, ósigra og næringu.
Boðið verður upp á morgunæfingu hvora vikuna fyrir sig. Á þessari aukaæfingu verður lögð áhersla á snerpu-sprettahraða og
stökkkraft.
Að auki mun Bjarni leikgreina krakkana og fara yfir greininguna með þeim, til að auka leikskilning þeirra.
Mikil áhersla er lögð á að hafa æfingarnar skemmtilegar, en um leið krefjandi og á háu tempó.
Síðasti dagurinn verður á léttu nótunum, þar sem foreldrar eru velkomnir til að kíkja á afraksturinn. Verðlaun verða veitt fyrir
þá sem skara framúr á námskeiðinu og allir fá viðurkenningarskjal með umsögn frá Bjarna og Oddi.
ATH. Takmörkun er á fjölda sem kemst á námskeiðið, því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Skráning fer fram á:
handboltaskolibjarnafritz@gmail.com
Nánari upplýsingar í síma 6927407
Námskeiðið kostar 12.900.