Vikuna 20.- 24. júní var starfræktur Handboltaskóli Greifans. Kennslan fór fram í Íþróttahúsi KA við Lundarskóla en
kennarar voru þeir Jóhannes G. Bjarnason og Sævar Árnson sem samanlagt hafa þjálfað handbolta í rúma hálfa öld. Á
níunda tug nemenda á aldrinum 11-18 ára skráðu sig í skólann og var hópnum skipt eftir aldri. Þátttakendur sóttu fyrirlestra
um hina ýmsu þætti handboltans og síðan tóku við fjölbreyttar æfingar í sal.
Á föstudeginum 24. var síðan sameiginleg æfing hjá öllum hópunum og komu þá margir góðir gestir sem aðstoðuðu
við þjálfunina. Má þar helsta nefna Guðjón Val Sigurðsson, Björgvin Pál Gústavsson, Ásgeir Hallgrímsson, Odd Gretarsson,
Heimi Árnson, Jóhann Gunnar Jóhannson, Atla Hilmarsson auk fleiri góðra gesta.

Ekki má gleyma heimsókn Arnórs Atlasonar á fyrsta degi skólans en þá heimsótti hann alla hópa, sagði til við þjálfun
og spjallaði við nemendur í lok æfinga. Viðtökur foreldra og nemenda voru afar góðar og því líklegt að Handboltaskóli Greifans
verði aftur á dagskrá næsta sumar.
Aðstandendur skólans vilja þakka Veitingahúsinu Greifanum fyrir samstarfið.
Hannes Pétursson sendi okkur fjöldann allan af myndum frá skólanum og er hægt að
skoða alla syrpuna með því að smella hér.