Hamrarnir hófu deildarkeppnina með sigri - myndir

Það var sögulegur leikur hjá Hömrunum á laugardaginn þegar þeir léku sinn fyrsta leik í 1. deildinni. Sterkt samband er á milli Hamranna og Akureyrar Handboltafélags enda eru allnokkrir leikmenn úr æfingahópi Akureyrar á láni hjá Hömrunum auk þess sem margir leikmenn úr 2. flokki Akureyrar spreyta sig með Hömrunum og fá þannig dýrmæta reynslu. Þá voru nokkur gamalkunnug andlit í leikmannahópnum sem hafa tekið fram skóna og sýndu að þeir kunna ýmislegt fyrir sér.


Vel tekið á í vörninni

Í þessum fyrsta deildarleik mættu Hamrarnir Þrótti frá Reykjavík og var leikið í KA heimilinu. Þróttarar voru sterkari aðili leiksins til að byrja með en leikur Hamranna slípaðist eftir því sem á leið og Hamrarnir leiddu með einu marki, 11-10 í hálfleik.


Friðrik Svavarsson með mark í uppsiglingu

Hamrarnir náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleik en slökuðu í kjölfarið fullmikið á og Þróttarar gengu á lagið og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Það var einkum stórbrotin markvarsla Stefáns Guðnasonar á lokamínútunum sem kom í veg fyrir að Þróttur næði að jafna leikinn.


Stefán Guðnason fór mikinn undir lokin

Að lokum fóru Hamrarnir með tveggja marka sigur, 28-26 og innbyrtu þar með sín fyrstu stig í deildinni og ljóst að þeir eru til alls líklegir í vetur.

Mörk Hamranna: Róbert Sigurðsson 7, Friðrik Svavarsson 4, Garðar Már Jónsson 3, Guðmundur Hermannsson 3, Óðinn Stefánsson 3, Birkir Guðlaugsson 3, Halldór Tryggvason 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Goran Gusic 1.

Mörk Þróttar: Hörður Óskarsson 9, Birkir Guðbjörnsson 4, Leifur Jóhannesson 3, Einar Ólafsson 3, Guðni Siemsen 3, Þorlákur Sigurjónsson 2, Styrmir Sigurðsson 2.

Hér á eftir fer viðtal Siguróla Sigurðssonar við Þorvald Þorvaldsson, þjálfara Hamranna en það birtist á sport.is:


Hér er hægt að skoða fleiri ljósmyndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum.